Anna Mjöll Ólafsdóttir er komin til Íslands til að halda tónleika til minningar um föður sinn, tónlistarmanninn og hljómsveitarstjórann Ólaf Gauk sem lést fyrir ári. Anna Mjöll er búsett í Los Angeles þar sem hún lifir og hrærist í tónlistinni. Virtur brasilískur tónlistargagnrýnandi valdi hana nýlega eina af fimm bestu djasssöngkonum heims.
Mikla athygli vakti þegar Anna Mjöll giftist bandaríska auðkýfingnum Cal Worthington en Cal er einn af ríkustu bílasölum heims og er afar þekktur í heimalandi sínu. Eftir stutt hjónaband sótti Anna Mjöll um skilnað. Hún lætur kjaftasögur um að hún hafi gifst til fjár sem vind um eyru þjóta og hefur nú fundið ástina aftur.
Sá heppni heitir Luca Ellis og er söngvari líka og þau kynntust á klúbbnum sem Anna Mjöll hefur verið að syngja á.
„Mig langar að eignast börn en það hefur bara verið svo margt annað í gangi að það hefur aldrei verið rétti tíminn.“

Hemmi Gunn fallinn frá