Íslenskir útgerðarmenn greiða Rússum veiðigjald

112 krónur fyrir kíló af þorsk í leigu til rússneskra yfirvalda

Árið 2011 sömdu íslensk útgerðarfélög við rússnesk yfirvöld um 112 króna leigugjald á hvert þorskígildiskíló leigukvóta vegna veiða í rússneskri lögsögu í Barentshafi. Samkomulagið er hluti af svokölluðum Smugusamningi frá árinu 1999. Íslendingar fá samkvæmt samkomulaginu úthlutaðar aflaheimildir í norskri og rússneskri lögsögu.

Með samningnum gáfu Íslendingar eftir veiðar í Smugunni en samningurinn er afsprengi deilna landanna þriggja. Norskar útgerðir fá úthlutaðan kvóta innan íslenskrar lögsögu í skiptum fyrir heimildir Íslands. Það vildu Rússar ekki en sóttu þess í stað fast eftir veiðigjaldi sem innheimtist í formi leigu vegna leigupotts. Samningar um gjald náðust ekki fyrr en árið 2007 en þá samdi LÍÚ fyrir hönd íslenskra útgerðarmanna við rússnesk yfirvöld um leigugreiðslur upp á 900 bandaríkjadollara á hvert óslægt tonn af þorski en þess utan 700 dollara á hvert tonn meðafla.

Samanburður á verði leigukvóta í Barentshafi og svo veiðigjöldum innan íslenskrar lögsögu er ef til vill ekki algjörlega sanngjarn. Samningar um leigukvóta eru hluti af kröfu Rússa um greiðslur vegna úthlutaðra aflahlutdeilda. „Það hefur verið mat manna til að viðhalda samningnum að Rússarnir fá engar veiðiheimildir á móti okkar. Þá höfum við sammælst um að leigja þetta til að ögra ekki Rússum til að segja upp samningnum,“ sagði Ólafur Marteinsson framkvæmdastjóri Ramma hf. en fyrirtækið er meðal fimm stórtækustu aðilunum sem stunda veiðar í Rússneskri lögsögu í umboði samningsins.

Áskrifendur DV geta lesið umfjöllun blaðsins um leigugjöld fyrir aflaheimildir í Rússneskri lögsögu Barentshafs í heild með því að smella á meira.

Meira »


Gleymt lykilorð?

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.