Segir Travolta hafa berað sig

Starfsmaður skemmtiferðaskips kærir leikarann

John Travolta hefur verið formlega kærður fyrir kynferðisbrot. Fyrrverandi starfsmaður skemmtiferðskips hefur kært leikarann til lögreglu og segir að Travolta hafi berað sig fyrir framan hann, káfað á honum og haldið sér nauðugum í káetu. Mun þetta hafa gerst um borð í skemmtiferðaskipi þar sem maðurinn starfaði, en Travolta var þá á ferðalagi um Karabíska-hafið. Lögmaður leikarans segir ásakanirnar fráleitar og segir að starfsmaðurinn sé aðeins að leita að skammvinnri frægð.

Þetta er þriðja kæran á hendur Travolta en hann var fyrir skemmstu kærður fyrir að hafa áreitt tvo karlkyns nuddara. Þeim kærum hefur þó verið vísað frá þar sem lögmaður Travolta gat sýnt fram á það að leikarinn var hvergi nærri þegar að áreitnin átti að hafa átt sér stað, heldur í öðrum landshluta.

CNN greinir frá


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.