Indíana Ása Hreinsdóttir
indiana@dv.is
08:25 › 27. júní 2012
Garðar Gunnlaugsson er kominn með nýja kærustu. Sú heppna er dökkhærð fegurðardís frá Akranesi en þar býr knattspyrnumaðurinn einmitt. Nýja kærastan heitir Alma Dögg Torfadóttir og starfar sem stuðningsfulltrúi á sambýli.
Fréttir af nýja sambandinu eiga eflaust eftir að brjóta hjörtu margra íslenskra kvenna því Garðar hefur verið einn allra heitasti piparsveinn landsins síðan upp úr hjónabandi hans og fyrirsætunnar og athafnakonunnar Ásdísar Ránar Gunnarsdóttur slitnaði fyrr á árinu.
Samkvæmt öruggum heimildum blaðsins hefur sambandið milli Garðars og Ölmu Daggar staðið í þó nokkurn tíma. Garðar neitaði að tjá sig um málið þegar eftir því var leitað.
Lestu meira í DV í dag.


Stóra IKEA-málið
Mannránin í Cleveland
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013