Búast við miklu á Þjóðhátíð

Dope D.O.D. spila á Þjóðhátíð og taka upp myndband

„Airwaves hátíðin var tryllt þannig að við búumst við einhverju geggjuðu núna líka,“ segja hollenski harðkjarnarapparinn Skits Vicious í samtali við DV en hann mun troða upp á Þjóðhátíð í Eyjum um verslunarmannahelgina ásamt félögum sínum Dopey og Jay í rappsveitinni Dope D.O.D. Skit segir þá félaga ekki vita mikið um Þjóðhátíð en hlakka til að heimsækja Ísland á ný.

Dope D.O.D. skutust upp á stjörnuhimininn fyrir tæpum tveimur árum síðan þegar þeir slógu í gegn á YouTube með myndbandinu við lagið What Happened. 7,5 milljón manns hafa horft á myndbandið síðan.

Þeir félagar eru ánægðir með vinsældirnar á Íslandi. „Við eigum aðdáendur út um allt og það er bara frábært að Ísland sé partur af því.“ Skits segir þá hafa fengið höfðinglegar móttökur þegar þeir komu í október í fyrra til að spila á Airwaves. Þeir þóttu frábærir á hátíðinni og áttu eitt besta atriðið það árið að margra mati.

Dope D.O.D. koma ekki bara til landsins í sumar til þess að koma fram á Þjóðhátíð. „Við ætlum líka að taka upp efni fyrir nýjasta myndbandið okkar,“ segir Skits en þeir hafa ekki síður verið lofaðir fyrir myndbandagerð en lagasmíðar. Hrjóstrugt landslag Íslands mun eflaust koma vel út í dimmum og drungalegum myndböndum þeirra.

Líkt og fyrr sagði hafa hlutirnir gerst hratt hjá Skits og félögum en þeir hafa meðal annars ferðast og haldið tónleika með rokkhundunum í Korn og Limp Bizkit. Í júní í fyrra var þeim boðið að hita upp fyrir Limp Bizkit í Amsterdam og hreifst Fred Durst söngvari sveitarinnar svo af fyrrnefndu myndbandi við lagið What Happened að hann bauð þeim að koma í tónleikaferð með sér. Sveitin fór því frá því að spila fyrir 500 manns á útgáfutónleikum sínum í að spila fyrir 10.000 manns daginn eftir. Síðan þá hafa þeir spilað með Korn í Bandaríkjunum og farið í sína eigin tónleikaferð um Evrópu.

Skits segir ýmislegt á dagskrá hjá Dope D.O.D. á næstunni en þeir sendu frá sér sína fyrstu breiðskífu, Branded, í september í fyrra. „Við erum að vinna að nýrri plötu, tveimur nýjum myndböndum og svo tónleikunum okkar þar sem við blöndum mikið saman hljóði og mynd.“

Meðlimir Dope D.O.D. voru ánægðir með dvöl sína hér á landi síðast þegar þeir komu. „Það var tekið frábærlega á móti okkur síðast og við erum klárir í framhald!“ segir Skits að lokum.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.