Viðtal Eiríks Jónssonar við fyrrverandi eiginkonu Svavars Halldórssonar á vefsíðu hans www.eirikurjonsson.is ýtti af stað miklum umræðum. Svavar Halldórsson gaf út yfirlýsingu í síðustu viku varðandi viðtalið. En fyrrverandi eiginkona hans, Kristjana Óskarsdóttir, fullyrti í því að Svavar væri ofbeldismaður sem meðal annars hefði beitt ömmu hennar ofbeldi árið 2002.
Viðbrögðin á Facebook létu ekki á sér standa. Kristinn Hrafnsson, talsmaður Wikileaks og fyrrverandi starfsmaður RÚV, sagðist eftir viðtalið aldrei munu tala um blaðamennsku og Eirík Jónsson í sömu andrá. „Það má teygja og toga hugtakið en aldrei svo að það feli í sér þá viðurstyggð sem hann bauð síðast uppá. Ömurleg tilraun til greiðasemi við náfrænku sína, Herdísi, og augljós eru kámug fingraför kosningastjóra hennar, Daggar Pálsdóttur sem var skilnaðarlögmaður fyrrverandi konu Svavars,“ sagði Kristinn Hrafnsson á Facebook síðu sinni.


Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Eurovison 2013
Alþingiskosningar 2013
Harmleikur á Egilsstöðum