Lilja Katrín hættir sem ritstjóri Séð og heyrt

Hefur störf hjá Sagafilm í haust

Lilja Katrín Gunnarsdóttir hefur sagt starfi sínu sem ritstjóri tímaritsins Séð og Heyrt lausu. Hún ætlar að venda sínu kvæði í kross og mun hefja störf hjá framleiðslufyrirtækinu Sagafilm í haust eftir að hafa unnið hjá útgáfufélaginu Birtingi í nær sex ár.

„Ég byrjaði fyrst í sumarvinnu, árið 2006 og vann síðan áfram með skóla. Kom síðan við á DV og var þar í um það bil ár eða svo, en er annars búinn að vinna hjá Birtingi í allan þennan tíma og hef starfað sem ritstjóri Séð og heyrt í rétt tæpt ár.“

Aðspurð hvort að hún hafi fengið nóg af blaðamennskunni segir Lilja Katrín svo ekki vera. „Nei, nei, mig langaði bara að prófa eitthvað annað, takast á við eitthvað nýtt. Ekki að festast í sama farinu endalaust.“

Um hvaða starfi hún muni gegna hjá Sagafilm segir hún að það sé frekar erfitt að útskýra. „Ég verð að vinna með framkvæmdarstjóranum í ýmsu. Allskonar verkefnum sem varða íslenskt sjónvarpsefni og bíómyndir og bara það sem þeir eru að framleiða. Þetta verður held ég mjög fjölbreytt, þetta hljómaði að minnsta kosti mjög vel.“


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.