Tómas: „Það gengur ekki alltaf allt upp eins og maður ætlar“

Segir samskipti mikilvægan hlut af starfi skurðlæknis

Tómas Guðbjartsson, yfirlæknir á skurðlækningasviði og prófessor í skurðlæknisfræði, átti þátt í að bjarga lífi Andemariam Teklesenbet Beyene, sem hingað var kominn til náms alla leið frá Erítreu. Tómas fjarlægði úr honum krabbameinsæxli á stærð við golfbolta og framkvæmdi seinna á honum fyrstu plastbarkaígræðslu í heimi. Hann tók einnig þátt í aðgerð á Skúla Eggert Sigurz, lögfræðingi á Lagastoðum sem var í bráðri lífshættu eftir margar hnífsstungur. Kristjana Guðbrandsdóttir hitti prófessorinn unga og kraftmikla á Landspítalanum og ræddi við hann um líf og dauða á skurðstofunni.

Tómas segir starfið gefandi þrátt fyrir að vera krefjandi og samskipti skipta gríðarlega miklu máli.

„Það sem er náttúrulega svo gaman við skurðlækningarnar er að oft sést dramatískur árangur og þá eru sjúklingar oft mjög þakklátir. Á sama tíma fylgir starfinu mikil ábyrgð. Það gengur ekki alltaf allt upp eins og maður ætlar. Stundum gerir maður erfiðar aðgerðir og það koma upp fylgikvillar. Þá er mikilvægt að taka á þeim og sinna samskiptum við sjúklinginn og ættingja. Ég segi alltaf við krakkana sem ég er að kenna hérna að það sést oft hversu góðir læknar eru þegar þeir sýna á deildinni og meðal kolleganna hvernig þeir taka á erfiðu málunum. Ekki kannski beint það sem hefur farið úrskeiðis en kannski það sem hefur ekki farið eins og allir áttu von á. Ég legg áherslu á að nemendur mínir gangi í öll mál og leysi þau.

Algengustu ástæðu þess að sjúklingar eru óánægðir með störf lækna má rekja til samskiptavandamála. Þeir sjúklingar sem kvarta eða kæra lækna hafa oft orðið fyrir hnökrum í samskiptum.

Samskipti eru nefnilega svo gríðarlega mikilvæg. Ég hef lagt mikið upp úr því sjálfur í kennslu að hafa samskiptin góð og til fyrirmyndar. Ég reyni að vera aðgengilegur og mæta þeim og hverju því sem angrar þau. Þannig læra þau það sem fyrir þeim er haft.

Ég sýni þeim áhuga og fæ þau til að átta sig á því að það þurfa ekki allir að vera eins eða með sömu áhugamál.“

Hér er birt brot úr viðtalinu. Það er birt í helgarblaði DV og er aðgengilegt áskrifendum Dv.is í heild sinni.

Meira »


Gleymt lykilorð?

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.