„Saman í 30 ár? Ég er bara orðlaus yfir þessari spurningu. Það er búið að vera svo gaman hjá okkur Maríu að okkur finnst við hafa byrjað bara í gær,“ segir fjölskyldufaðirinn og tónlistarmaðurinn Bjartmar Guðlaugsson sem fagnaði sextugsafmæli á miðvikudaginn.
Þegar landsmenn hugsa um Bjartmar sjá flestir fyrir sér svarta, síða hárið, leðurjakkann og gítarinn hangandi yfir öxlina á honum. En þarna er líka á ferðinni hamingjusamlega kvæntur fjölskyldufaðir sem á þrjár dætur og fimm barnabörn. Ekki nóg með það heldur einnig tvo ketti, þá Simba og Pétur Eilíf, og hundinn Kormák Héðin.
María Helena Haraldsdóttir, eiginkona Bjartmars, hefur alla tíð tekið virkan þátt í listsköpun hans og aðstoðað hann í einu og öllu í tónlist og myndlist. Sjálfur segist Bjartmar taka virkan þátt í hennar lífi og áhugamálum og að það sé galdurinn á bak við gott samband.
Aldrei án hennar
Eins og Bjartmar kom inn á gengur á ýmsu í lífinu og þegar verst lætur segir hann ómetanlegt að eiga lífsförunaut. Það þekkir Bjartmar vel en hann gekk fótbrotinn í ein 27 ár. Áður en hann fékk bóta sinna mein var hann svo kvalinn að lífsmátturinn var hreinlega að leka úr honum.
„Síðustu sjö árin af þessum 27 voru hreinasta víti. Ég var kominn með dauðaþrána. Það er alveg á hreinu að ég hefði aldrei farið í gegnum þetta án hennar. Aldrei án hennar,“ segir Bjartmar og þagnar í smástund.
„Þegar maður er kominn í þá stöðu sem ég er í dag, svona þakklátur, þá vill maður bara halda sér til hlés, brosa og vera ekkert að tjá sig of mikið. Þegar maður hefur kynnst þessu þunglyndi og svarta, svarta myrkri, þá langar mann ekki þangað aftur og gerir það sem maður þarf til að komast hjá því. Ræktar garðinn sinn.“
Nánar er rætt við Bjartmar í DV í dag


Stóra IKEA-málið
Mannránin í Cleveland
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013