Hollywood-leikarinn Tom Cruise er væntanlegur hingað til lands á næstu dögum í tengslum við tökur á kvikmynd eftir skáldsögunni Oblivion í leikstjórn Joseph Kosinski, samkvæmt heimildum DV. Tökur á kvikmyndinni eiga að hefjast í Hrossaborgum í Mývatnssveit þann 18. júní næstkomandi. Sömu heimildir herma að Cruise hafi tekið á leigu glæsihýsið Hrafnabjörg í Eyjafirði meðan á dvöl hans stendur hér á landi. Hrafnabjörg voru í eigu Jóhannesar Jónssonar, kenndum við Bónus, áður en skilanefnd Landsbankans leysti húsið til sín í desember árið 2010.
Það var svo svissneski auðkýfingurinn Thomas Martin Seiz sem keypti húsið síðasta vor á litlar 200 milljónir króna. Hann staðfesti í samtali við DV að erlendur leikari hefði tekið húsið á leigu næstu vikurnar, en sagðist þó ekki vita hver það væri. Hann sagðist sjálfur ekki vera í neinum í samskiptum við leigjendur hússins enda sæi leigumiðlun alfarið um þau mál fyrir hans hönd.
Ferðast á milli með þyrlu
Húsið, sem er 427 fermetrar og á tveimur hæðum, er teiknað af arkitektinum Fanneyju Hauksdóttur. Á efri hæðinni eru stofa, borðstofa og eldhús í stóru og opnu rými. Miklir útsýnisgluggar í stofunni ná alveg niður í gólf, en í rýminu er einnig arinn. Á neðri hæðinni er tæknirými, líkamsræktaraðstaða og tvö baðherbergi. Á lóðinni við húsið er svo 40 fermetra útisundlaug og stór heitur pottur.
Ekki er vitað hvort Cruise verður einn í húsinu, eða hvort fjölskylda hans verður með í för. En Cruise er giftur leikkonunni Katie Holmes og eiga þau eina dóttur, Suri Cruise. Hvað sem því líður ætti ekki að væsa um Cruise að Hrafnabjörgum. Hann mun svo ferðast á milli glæsihýsisins og tökustaðarins í Hrossaborgum með þyrlu.
Cruise er ekki fyrsta stórstjarnan sem dvelur í húsinu í tengslum við tökur á kvikmynd hér á landi, en heimildir DV herma að leikstjórinn Ridley Scott hafi einnig leigt húsið þegar hann var hér við tökur á stórmyndinni Prometheus síðastliðið sumar.
Aðrir leikar á Hótel Reynihlíð
Heimildir DV herma að tvö hundruð manna tökulið komi hingað til lands vegna kvikmyndarinnar og þá mun einnig vera von á fleiri stórleikurum úr Hollywood í Mývatnssveitina. Morgan Freeman er til að mynda í leikaraliði kvikmyndarinnar Oblivion. Heimildirnar herma að starfsfólk kvikmyndarinnar sé þessa dagana að koma sér fyrir á hótelum í sveitinni og sé byrjað að undirbúa tökur. Samkvæmt sömu heimildum munu aðrir leikarar en Tom Cruise gista á Hótel Reynihlíð sem Erna Þórarinsdóttir, söngkona og móðir Anítu Briem leikkonu, rekur ásamt eiginmanni sínum. Hótelið er fjögurra stjörnu og staðsett á einkar glæsilegum stað í Mývatnssveit.
Joseph Kosinski, leikstjóri Oblivion, mun hafa komið hingað til lands árið 2010 í leit að heppilegum tökustað fyrir kvikmyndina sem gerist í framtíðinni. Hann virðist hafa heillast af svæðinu í kringum Mývatn, en stórbrotið og eyðilegt landslagið á svæðinu hentar vel sem leikmynd fyrir kvikmyndina.
Til stendur að frumsýna Oblivion á næsta ári, en áætlaður kostnaður við gerð myndarinnar er um 12 milljarðar íslenskra króna.

Eurovison 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013