Eiríkur Jónsson í loftið: „Okkar eigin fréttir“

eirikurjonsson.is færir út kvíarnar

„Komið þið sæl og verið velkomin í þessa fyrstu sjónvarpsútsendingu,“ sagði fjölmiðlamaðurinn Eiríkur Jónsson sem hefur farið mikinn á vef sínum, eirikurjonsson.is undanfarið.

Eiríkur hélt stutta tölu um vef sinn sem átti þriggja mánaða afmæli í gær, þriðjudaginn 12. júní, og boðaði fleiri útsendingar.

„Í framtíðinni þá eigið þið eftir að sjá fleiri svona þætti hér, þar sem við tölum við þá sem skipta máli, alla þá sem við viljum sjá, viljum heyra í og líka kynlega kvisti sem þið sjáið alltof sjaldan,“ sagði Eiríkur sem segir vefinn fá þúsundir gesta á hverjum degi og allt að 50 þúsund gesti í hverri viku.

Þá sagði Eiríkur frá áherslum sínum sem eru helstar þær að vera með frumlegar fréttir. „Við flettum ekki fréttatilkynningum, eltum ekki aðra, segjum okkar eigin fréttir,“ sagði Eiríkur en ekki er ljóst hvað hann á við með „við“ en hingað til hefur hann ríkt einn yfir vef sínum.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.