Sá sjaldgæfi atburður mun eiga sér stað 23. júní næstkomandi að þríburar útskrifast samdægurs úr grunnnámi frá Háskóla Íslands. Jóhanna Björk Magnúsdóttir, Ragnheiður Björg Magnúsdóttir og Guðni Þór Magnússon, 27 ára, útskrifast öll saman þennan dag, en þó ekki öll úr sama náminu. Systurnar Jóhanna og Ragnheiður útskrifast báðar með B.ed-gráðu í grunnskólakennslufræðum en Guðni Þór útskrifast með BA-gráðu í lögfræði.
Það verður því gleðidagur í fjölskyldunni þegar þrjú af fimm systkinum útskrifast með háskólapróf. Foreldrar þeirra og tveir yngri bræður búa á Eskifirði og ætla að koma suður til Reykjavíkur til að halda upp á þennan áfanga. „Það verður nú eitthvað smápartí í tilefni dagsins,“ segir Jóhanna Björk létt í bragði. Guðni Þór tekur undir með systur sinni. „Það verður tekinn dagur með fjölskyldunni, það eru allir að koma í bæinn,“ segir hann. Guðni segist ekki vita hvort þetta sé í fyrsta skipti í sögu HÍ sem þríburar útskrifast saman, hann hafi ekki velt því fyrir sér enda löngu hætt að finnast merkilegt að vera þríburi.
Þrátt fyrir að þau útskrifist öll saman þennan dag segir hann að þau hafi ekki alltaf fylgst að. „Eftir grunnskóla fór ég í Menntaskólann á Akureyri á meðan þær fóru til Egilsstaða,“ segir hann. Þegar Guðni er spurður hver sé besti námsmaðurinn af þeim þremur, segist hann ekki geta svarað því: „Við fórum svo gjörsamlega ólíkar leiðir í þessu.“

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Eurovison 2013
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013