Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
12:00 › 13. júní 2012
Förðunarfræðingurinn Margrét R. Jónasardóttir, eða Magga í Make-Up Store eins og hún er gjarnan kölluð, er þessa dagana stödd í sólinni á Frönsku rívíerunni.
Samkvæmt Facebook-síðu Margrétar eru engar aðrar en Hollywood-stjörnurnar Emma Thompson og Pierce Brosnan í nágrenninu að taka upp kvikmyndina Love Punch en Joel Hopkins skrifaði handrit og leikstýrir myndinni.
Margrét hefur lengi haldið úti vinsælli vefsíðu þar sem hún fjallar um tísku, förðun, mat og fram allt um fræga fólkið svo nú hljóp heldur betur á snærið hjá henni.

Hemmi Gunn fallinn frá