Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
09:21 › 13. júní 2012
Adam Sandler segir dætur sínar skammast sín fyrir hann. Leikarinn á tvær stelpur, Sadie Madison, sex ára, og Sunny Madeline, þriggja ára.
„Þær þola ekki hvernig ég klæði mig. Ég geng mikið í stuttbuxum en þær skipa mér að fara í síðbuxur áður en ég skutla þeim í leikskólann. Ég man að ég skammaðist mín fyrir pabba minn. Hann var í sömu buxunum í viku í senn.
Ef vinir mínir komu í heimsókn var hann alltaf í sömu brúnu buxunum. Ég skil þetta núna. Ég er bara að verða eldri og er orðið meira sama.“

Eurovison 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013