Britney er grimm!

Poppprinsessan stendur sig vel sem dómari

Britney Spears virðist ætla að standa sig vel sem dómari í þættinum The X Factor. Söngkonan tekur hlutverk sitt allavega alvarlega ef marka má áheyrnarprufur sem fram fóru í Kansas í vikunni.

Grimmi dómarinn, Simon Cowell, var fjarri góðu gamni í Kansas en það kom ekki að sök þar sem Britney sá um að rústa draumum og sjálfstrausti ungra söngvara upp á sitt einsdæmi.

„Hún er með meðfædda hæfileika og fylgir eðlisávísun sinni. Þegar henni líkar eitthvað langar hana mest til að hoppa upp á borð og dansa. En ef henni mislíkar eitthvað lætur hún þátttakendur heyra það,“ sagði ónefndur heimildamaður í viðtali við People.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.