Fagnar eins árs ríkisborgararétti

Jussanam Da Silva heldur tónleika

Jussanam Da Silva stóð í ströngu fyrir rúmlega ári. Þá var henni og dóttur hennar vísað úr landi í kjölfar skilnaðar. Jussanam og dóttir hennar höfðu aðlagast lífinu á Íslandi vel. Jussanam vann á frístundaheimili og söng í frístundum og dóttir hennar var í hjúkrunarnámi.

Hún sóttist stíft eftir því að fá að dvelja áfram hér á landi og eftir harða baráttu var henni fenginn ríkisborgararéttur vegna þess hve menningarlífið nýtur góðs af veru hennar hér. Jussanam heldur tónleika í Gamla bíói þann 18. júní til að fagna eins árs afmæli ríkisborgararéttarins og til að kynna ný lög.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.