Humphries sigar FBI á fyrrverandi

Reynir að kúga fé af körfuboltakappanum

NBA-kappinn Kris Humphries, sem kannski er frægastur fyrir að hafa kvænst Kim Kardashian og skilið við hana nokkrum dögum síðar í fyrra, hefur þurft að leita til bandarísku alríkislögreglunnar, FBI, vegna fyrrverandi kærustunnar sinnar. Þó ekki Kim Kardashian.

Konan heiti Myla Sinanj og mun hún um nokkurt skeið hafa reynt að kúga fé úr körfuknattleikskappanum. Hún er sögð luma á tölvupóstum, smáskilaboðum og öðrum gögnum, sem hún hélt upp á frá sambandi þeirra. Hefur hún hótað að „ganga frá honum opinberlega“ ef hann borgar henni ekki háar fjárhæðir.

Lögmenn þeirra náðu engum sáttum um málið svo Humphries og lögmenn hans vísuðu fóru því mðe það til FBI.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.