Eilíf ást leiddi Herbert og Lísu saman

„Já, við erum trúlofuð“

„Já, við erum trúlofuð,“ segir söngvarinn góðkunni Herbert Guðmundsson sem hefur fundið ástina í örmum Lísu Daggar Helgadóttur. Þeir sem til þekkja segja Herbert hafa yngst um mörg ár við nýfundna ást en ástarsamband þeirra hófst fyrir nokkrum mánuðum. „Ég kynntist þessari yndislegu konu sem ég er yfir mig ástfanginn af. Við erum búin að vera saman síðan fljótlega eftir Eurovision,“ segir Herbert og á við forkeppni Eurovision þar sem hann átti lagið Eilíf ást.

„Ég vil meina að lagið Eilíf ást hafi leitt okkur saman. Henni fannst lagið gott og við fórum að spjalla saman á Facebook og kynntumst síðan betur og betur og urðum bara ástfangin,“ segir hann. Talsverður aldursmunur er á parinu, eða 26 ár. Þau segja það þó ekki koma að sök þar sem aldur sé afstæður. „Við finnum ekkert fyrir aldursmuninum,“ segir Lísa Dögg og segir frábært hversu vel þeirra nánustu hafi tekið sambandinu. „Það eru allir rosalega jákvæðir – það er alveg magnað, miklu jákvæðari en ég þorði að búast við. Bæði fjölskylda og vinir,“ segir hún.

Herbert á syni úr fyrra hjónabandi en Lísa er barnlaus. Hún segir syni Herberts taka sér opnum örmum. „Þeir taka þessu rosalega vel og mér finnst ég eiga smá part í tveimur yngstu.“

Parið svífur ekki aðeins á ­vængjum ástarinnar heldur ætlar það líka að eyða ævinni saman. Herbert bað Lísu nefnilega á dögunum við rómantískar aðstæður í Reykjavíkurborg. „Hann fór á hnén niðri við Tjörn og var með hring og allt tilbúið. Inni í hringnum stendur Eilíf ást. Setningin sem er svo falleg og tengir okkur saman,“ segir Lísa yfir sig ástfangin af Herberti sínum.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.