Vanmat tryllta aðdáendur Justin Biebers í Osló

Öngþveiti á tónleikum ungstirnisins þar sem 49 slösuðust

Fjörutíu og níu slösuðust og 19 voru fluttir á sjúkrahús eftir tónleika kanadíska ungstirnisins Justin Biebers við óperuhúsið í Osló í gærkvöldi. Norskir fjölmiðlar greina frá heimsókn drengsins til Osló en mætingin á tónleikana var slík að öngþveiti myndaðist fyrir framan tónleikastaðinn nokkrum klukkustundum áður en þeir hófust.

Tónleikahaldarinn hefur viðurkennt mistök við skipulagningu tónleikanna eftir að hafa hlotið harða gagnrýni frá foreldrum þeirra sem sóttu tónleikanna þar sem fjöldi ungra stúlkna féllu í yfirlið sökum troðnings.

Forstjóri útgáfufyrirtækisins Universal Music, Peter Singsaas, hefur beðist opinberlega afsökunar á þessu í yfirlýsingu þar sem hann segist hafa gert þau mistök að hafa haldið að öryggisgæslan væri nægjanleg miðað við stærð tónleikanna. Segir hann starfsmenn sína hafa verið í nánum samskiptum við lögregluna í Osló, norsku óperuna og öryggisfyrirtækið PROSEC.

Lögreglan í Osló telur að um 20 til 30 þúsund hafi sótt tónleikanna en mikill áhugi er fyrir því hér á landi að fá söngvarann til Íslands.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.