Bandaríski rokkarinn Bruce Springsteen lét bankamenn heyra það á tónleikum í Berlín, Þýskalandi, í gær þegar hann kallaði þá gráðugu þjófa.
Springsteen, betur þekktur sem Brúsi frændi hér á landi, flutti lög af nýjustu plötu hans „Wrecking Ball“ á tónleikunum en á milli laga ræddi hann efnahagskreppuna sem hefur dunið á Bandaríkjunum og Evrópu.
„Í Bandaríkjunum hafa fjölmargir misst vinnuna,“ sagði hinn 62 ára gamli Springsteen, sem spilaði í þrjá tíma fyrir 58 þúsund áhorfendur á ólympíuleikvanginum í Berlín.
„Það eru einnig erfiðir tímar í Evrópu og Berlín,“ bætti hann við á þýsku. „Þetta lag er fyrir alla sem eiga erfitt uppdráttar,“ sagði Springsteen áður en hann lék Jack of All Trades, sem er ádeila á stéttskiptinguna í heiminum en í laginu syngur Springsteen: „Bankamaðurinn fitnar en verkamaðurinn horast.“

Eurovison 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013