Svona er himnaríki

Herdís Guðmundsdóttir listakona og lýðheilsufræðingur 40 ára 27. maí

Herdís er íhugul kona og spáir í tilveruna og byrjaði á því strax í bernsku. „Þegar ég var lítið ætlaði ég að verða stjörnufræðingur og búa alein og ættleiða stelpu frá Kína af því að það var svo mikil fátækt þar. Á þessum aldri eru strákar bara stríðnir og leiðinlegir, þess vegna vildi ég bara verða ein.“

Frá æsku hefur hún fengist við sitthvað en stjörnurannsóknir hafa enn ekki verið teknar föstum tökum hvað sem framtíðin leiðir í ljós. „Eftir að ég flutti suður kláraði ég Verzlunarskólann en var á villigötum með hvað ég vildi verða, langaði í læknanám eða myndlistaskóla og svo er alltaf draumurinn að ljúka námi á þverflautu. Til að vera aðeins hagsýn fór ég í viðskiptafræði á meðan ég var að hugsa mig um framtíðina. Það var fínt að starfa við ráðgjöf og fjárstýringu en eftir hrunið varð allt eitthvað svo neikvætt og leiðinlegt að ég ákvað að gera mína tilveru skemmtilegri og fór í Háskólann í lýðheilsu- og kennslufræði. Þetta hefur opnað mér svo marga glugga og gefið mér nýja lífssýn. Við þurfum að auka áhugaverðar forvarnir í samfélaginu. Ég er alveg heilluð af gildi forvarna. Öflug og skynsamleg fræðsla í skólum getur skilað ótrúlega miklum samfélagslegum sparnaði,“ segir Herdís í fullvissu þess að hjálpa verði fólki til að geta valið sér skynsamlegustu leiðirnar í lífinu.

Herdís er í viðtali á afmælissíðu í helgarblaði DV. DV óskar Herdísi innilega til hamingju með afmælið í dag

Meira »


Gleymt lykilorð?

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.