„Ég er ofboðslega hamingjusöm“

„Allt í einu áttu barn sem vill ekki leiða þig úti á götu“

„Ég verð bara að segja alveg eins og er, ég er ofboðslega hamingjusöm í þessu hlutverki. Mér finnst þetta alveg frábært og veit ekkert betra,“ segir Katrín Júlíusdóttir sem eignaðist tvíbura þann 23. febrúar síðastliðinn. Hún nýtur þess í botn að vera í fæðingarorlofi og segir dagana líða ótrúlega hratt. Þeir fari allir í að sinna börnunum og það finnst henni æðislegt.

„Allir dagar eru frábærir, eða já, ókei, ég er stundum svolítið þreytt,“ viðurkennir hún hlæjandi. „Ætli það yrði ekki sendur sálfræðingur á mig ef ég fullyrti þetta. Nei, auðvitað koma alveg dagar þar sem maður er svefnlaus og svona. Við áttum erfiða nótt í nótt en þetta er samt svo gaman að maður lætur sig hafa það.“

Katrín og Bjarni áttu hvort sinn drenginn fyrir sem nú eru báðir að komast á unglingsaldur. Þau vita því bæði hvað tíminn með börnunum er dýrmætur.

„Ég veit líka að þessi tími líður rosalega hratt og áður en maður veit af, maður á að njóta hans þó að hann sé erfiður. Maður veit að allt í einu er hann búinn og allt í einu áttu barn sem vill ekki leiða þig úti á götu. Þannig að ég er voða mikið í því að njóta þess að halda á þeim og vera með þá í fanginu. Þó það sé erfiðara fyrir mann sjálfan þá vil ég það bara því ég vil njóta þess.“

Katrín er í einlægu viðtali í helgarblaði DV þar sem hún ræðir pólitíkina, ástina og móðurhlutverkið.

Meira »


Gleymt lykilorð?

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.