„Þetta var svo flott að það er nánast lögreglumál“

Íslendingar óðir á Twitter á meðan Eurovision stendur

„Vel gert Ísland! Þetta var svo flott að það er nánast lögreglumál. Til hamingju,“ tístar lögreglan á höfuðborgarsvæðinu um framlag Íslands í Eurovision, sem flutt er af Gretu Salóme og Jónsa, á samskiptasíðunni Twitter.

Íslendingar leggja ekki frá sér tölvurnar þó svo að hin gríðarvinsæla söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva Eurovision sé í gangi þessa stundina. Búast má við að einhverjir séu í góðra vina hópi að fylgjast með keppninni en það eru þó margir sem hafa sterkar skoðanir á þessari keppni.

Á samskiptasíðunni Twitter er hægt að fylgjast með ummælum Íslendinga sem tísta þar af miklum móð undir merkinu #12stig. Þar fara til að mynda fremst í flokki Gísli Marteinn Baldursson borgarfulltrúi og Reynir Þór Eggertsson Eurovision-sérfræðingur.

Þar fá að fjúka kaldhæðnislegar athugasemdir um flytjendur sem og að menn setja sig í stellingar og spá fyrir úrslitum keppninnar.

„Er að heyra að ef Humperdinck vinnur Eurovision þá taki hann sæti Tottnham í Evrópudeildinni. Svekkjandi,“ tístaði Gísli Marteinn til að mynda en þar vísar hann í örlög enska úrvalsdeildarliðsins Tottenham sem missti sæti sitt í Meistaradeildinni eftir að fjendur þeirra í Lundúnaliðinu Chelsea unnu Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu. Engelbert Humperdinck flytur lag Breta í ár en það er lagið Love will set you Free.

Þeir sem nýta sér þjónustu símfyrirtækisins Vodofone geta fylgst með tísti Íslendinga á rásinni 996 en aðrir verða að skella sér á Twitter og leita uppi merkið #12stig til þess að lesa hvað Íslendingar hafa um keppnina að segja.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.