„Það var mikið áfall fyrir alla að missa Sjonna. Hann var einstakur drengur og vinur og hafði eina þá fallegustu nærveru sem ég hef kynnst. Ég vildi óska þess að við hefðum náð að framkvæma meira saman. Hann var á kafi í tónlistinni og ég í leiklistinni, þannig að leiðir okkar lágu ekki nógu oft saman í starfi,“ segir Gísli Örn Garðarsson leikari.
„Allir sem þekktu hann finna fyrir miklu skarði. Það er mjög áþreifanlegt að hann skuli vera farinn. Ég finn fyrir honum á hverjum degi. Traustur og stórkostlegur vinur er farinn. Hann samdi tónlistina fyrir leikverkið Brim og ég var með söngleik í maganum sem ég hafði ætlað okkur að vinna saman. En lífið greip harkalega í taumana. Sumt fær maður líklega aldrei skilið.“
Lestu einlægt viðtal við Gísla Örn í Helgarblaði DV


Harmleikur á Egilsstöðum
Eurovison 2013
Alþingiskosningar 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi