„Ég vil meina að ég hafi að sjálfsögðu úthald í 90 mínútna leik en þjálfarinn verður að meta það þegar þar að kemur,“ segir markahrókurinn Tryggvi Guðmundsson hjá ÍBV. Hann hefur verið fjarri góðu gamni í fyrstu umferðum Pepsi-deildar karla þetta sumarið en aðdáendur liðsins geta glaðst á þriðjudaginn kemur þegar Eyjamenn fá Stjörnuna úr Garðabæ í heimsókn. Tryggvi verður í hópnum.
Baráttan við Bakkus
Athygli vakti skömmu áður en Íslandsmótið hófst þegar Tryggvi var stöðvaður drukkinn undir stýri í Vestmannaeyjum. Komst sá kvittur á kreik að það væri ástæða þess að Tryggvi spilaði ekki fyrstu leiki ÍBV þetta sumarið en því fór fjarri. Sjálfur er Tryggvi fáorður um það atvik. „Þetta var augnabliks hugsunarleysi hjá mér og ég gerði einfaldlega mistök. Í kjölfarið fór ég beint á Vog til að taka á þessu og tel mig hafa lært mína lexíu.“
Nánar er rætt við Tryggva í DV í dag. Áskrifendur geta lesið alla fréttina hér fyrir neðan


Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Eurovison 2013
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013