Staðfesting á einu verst geymda leyndarmáli Hollywood barst í gær þegar leikarinn Jim Parsons, sá er leikur Sheldon Cooper í þáttunum The Big Bang Theory, opinberaði formlega að hann væri samkynhneigður og að hann og maki hans hafa verið saman í tíu ár.
Parsons, sem er 39 ára, hefur starfað bæði í kvikmynda og sjónvarpsheiminum í Hollywood, en hann leikur um þessar mundir samkynhneigðan karlmann í leikritinu „The Normal Heart.“ Í umfjöllun New York Times um leikritið skrifar blaðamaður að Parsons hafi getað tengst persónu sinni í leikritinu að mörgu leyti, sérstaklega í ljósi þess að: „hann er samkynhneigður og hefur verið í sambandi í 10 ár.“
Parsons hefur ekki rætt einkalíf sitt í fjölmiðlum að neinu leyti, en sambýlismaður hans er Todd Spiewak. Líkt og áður sagði hefur þetta verið eitt verst geymda leyndarmál Hollywood og hafa þeir Parsons og Spiewak ekki falið sambandið í fjölmiðlum – þeir hafa einfaldlega ekki rætt það.

Hemmi Gunn fallinn frá