Jenna Talackova, sem er fyrsta transmanneskjan til að taka þátt í kanadísku útgáfunni af Ungfrú alheimur, var á meðal 12 efstu af 61 einum keppenda í keppninni um síðastliðna helgi.
Þrátt fyrir að hafa ekki komist í hóp 5 efstu líkt og hún vonaðist eftir fór Talackova ekki tómhent heim, en hún var ein af fjórum keppendum sem hlutu titilinn Ungfrú viðkunnaleg.
Hin 23 ára og stórglæsilega Talackova fæddist sem karlmaður en gekkst undir kynleiðréttingu fyrir fjórum árum síðan. Hún átti í fyrstu ekki að fá að taka þátt í keppninni þar sem reglur kváðu á um að keppendur hefðu fæðst kvenkyns. Áskorun undirrituð af 30 þúsund manns varð þess þó valdandi að forsvarsmenn keppninnar endurskoðuðu reglurnar.
„Hún er sigurvegari í mínum augum,“ sagði lögmaður Talackova eftir keppninna. „Hún vann stórkoslegan sigur í mannréttindamálum og það er mikilvægara en allt annað.“

Eurovison 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013