Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
09:26 › 23. maí 2012
Leikkonan Kristin Stewart gerði örvæntingarfulla tilraun til að bæta mannorð sitt í nýju viðtali við tímaritið Elle. Twilight stjarnan hefur legið undir ámæli fyrir að vera ekki í takt við raunveruleikann eftir að hafa líkt myndatökum á rauða dreglinum við það að vera nauðgað.
Leikkonan er í viðtalinu til að kynna kvikmyndina Snow White and the Huntsman og notar tækifærið til að kvarta og kveina. Í þetta skiptið yfir því hversu auðvelt líf hennar sé. „Maður lærir svo mikið af slæmum hlutum. Ég er bara leiðinleg. Af hverju er allt svona auðvelt fyrir mig? Ég get ekki beðið eftir að eitthvað skelfilegt gerist fyrir mig. Bara lífið. Ég vil að einhver svíki mig,“ segir Kristin í Elle.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Eurovison 2013
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013