Tobba brjáluð út í Séð og heyrt

Ósátt við umfjöllun um veikindi pabba síns

Þorbjörg Marinósdóttir, betur þekkt sem Tobba Marinós, er ósátt við tímaritið, sem hún vann áður á. „Örlagarík helgi hjá Tobbu Marínós: Pabbi fékk hjartastopp. Sagan öll,“ segir á forsíðu tímaritsins Séð og heyrt í þessari viku. Bæði Tobba og fjölskylda hennar eru ósátt yfir því að ekki hafi verið haft samráð við hana vegna birtingarinnar.

Tobba greindi frá því á Facebook að hún hefði „aldrei skammast sín fyrir að vera fyrrum starfsmaður á Séð og heyrt fyrr en í dag [miðvikudag].“ Kærasti hennar, Karl Sigurðsson, Baggalútur og borgarfulltrúi, vandaði Séð og Heyrt ekki heldur kveðjurnar. Systir Tobbu, Rebekka Rut Marínósdóttir, kvartar einnig á vefsíðu Séð og heyrt: „Gaman að sé skrifað svona bakvið mann frétt um fjölskylduvandamál manns og ekki látið mann eða annan vita sem viðkemur málinu ...“

Lilja Katrín Gunnarsdóttir, ritstjóri Séð og heyrt, og Tobba eru vinkonur og hafa verið um ára bil. Þær voru samstarfsmenn á Séð og heyrt en Lilja Katrín lék einnig aðalhlutverkið í þáttunum Makalaus sem gerðir voru eftir bókum Tobbu. Þá störfuðu þær einnig saman í sjónvarpsþætti Tobbu sem sýndur var síðastliðinn vetur, þar sem Lilja Katrín sá um innslög fyrir Tobbu og fékk marga þjóðþekkta einstaklinga til að sprella með sér. Lilja Katrín vildi ekki tjá sig um málið að svo stöddu. Raunar kemur blaðið ekki til áskrifenda fyrr en í dag, föstudag vegna bilunar í prentsmiðju, segir á Facebook síðu Séð og heyrt. Aðspurð sagði Lilja Katrín það ekki tengjast umræddri forsíðu. Ekki náðist í Tobbu Marínós við vinnslu fréttarinnar.

Tobba hefur verið áberandi í fjölmiðlum undanfarin ár. Hún hóf feril sinn í fjölmiðlum á Séð & heyrt, þar sem hún skrifaði um súrt og sætt í lífi fólks.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.