Fleirum líkar við Dorrit en Ólaf

Forsetahjónin bæði komin á Facebook

Dorrit Moussaieff forsetafrú er búin að opna Facebook-síðu. Strax þremur dögum eftir að hún opnaði síðuna eru tæplega 1.500 einstaklingar búnir að „líka við“ forsetafrúnna. Athygli vekur að fleirum líkar við Dorriti heldur en Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands og eiginmann hennar, og munar talsverðu á þeim hjónum. Rúmlega 820 manns hafa „líkað við“ síðu Ólafs en hann opnaði sína síðu 2. maí.

Ljóst er að hjónakornin eru komin á fullt í kosningabaráttuna en hún hófst líklega með formlegum hætti með viðtali við Ólaf Ragnar á Bylgjunni, opnun kosningamiðstöðvar og heimasíðu, en allt þetta var gert um helgina. Ólafur á undir högg að sækja en hann mælist með minna fylgi en Þóra Arnórsdóttir fjölmiðlakona, sem boðið sig hefur fram á móti honum.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.