Þóra býður sig fram til forseta

„Ég sé fyrir mér manneskju sem ýtir undir sátt“

Þóra Arnórsdóttir ætlar að bjóða sig fram til embættis forseta Íslands en það tilkynnti hún vinum og fjölskyldu í gær. Í fréttatilkynningu frá stuðningsmönnum hennar er boðað til fundar í Hafnarborg í Hafnarfirði klukkan korter yfir fjögur í dag.

Í henni segir að hún muni ávarpa fundinn klukkan hálf fimm og skýra frá ákvörðun sinni varðandi framboð til embættis forseta Íslands.

Þóra er í viðtali í Páskablaði DV og ræðir meðal annars um sýn sína á forsetaembættið. „Forsetinn er eini embættismaðurinn sem þjóðin öll fer og kýs persónukjöri. Það þýðir líka í mínum huga að hann eigi að vera forseti allrar þjóðarinnar. Auðvitað má segja að kosningar séu alltaf pólitískar á einhvern hátt, en forsetakjör hefur ekkert með flokkapólitík að gera. Forsetinn er ekki á vegum flokka, hann er ekki á vegum hagsmunahópa og hann tekur ekki afstöðu í pólitík, blandar sér í ekki í pólitískar deilur,“ segir Þór og heldur áfram:

„Fólk lætur ekki segja sér hvern það eigi að kjósa eftir einhverjum pólitískum línum. Um leið og forsetinn blandar sér í pólitík er hann farinn að skipa sér bak við víglínu og nóg er af þeim í þessu samfélagi. Ég sé fyrir mér manneskju sem ýtir undir sátt. Í grunninn erum við friðsæl þjóð þótt ýmislegt hafi gengið á og umræðan eins og hún hefur verið síðustu árin ekki beinlínis ýtt undir það góða í þjóðarsálinni. Það er miklu fleira sem sameinar okkur en sundrar og forsetinn á að hvetja fólk til góðra verka, hann á að stappa í það stálinu þegar þess þarf og út á við þarf hann að vera góður málsvari. “


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.