„Hugsjónir mínar og áherslur á eflingu mannréttinda og lýðræðis ásamt almennum bakgrunni, menntun, störfum og ekki síst reynslu á alþjóðavettvangi og lífsreynslu eru að mati þeirra sem styðja mig og hvetja forsenda þess að ég eigi erindi inn á þennan vettvang og ég er þess fullviss að ég geti orðið þjóðinni að liði,“ segir forsetaframbjóðandinn dr. Herdís Þorgeirsdóttir í viðtali í Páskablaði DV. Hún er tilbúin í slaginn.
„Forsetinn á að hvetja til listrænnar sköpunar, frjórrar hugsunar, akademísks frelsis í háskólasamfélaginu og lýðræðislegrar umræðu á opinberum vettvangi. Forsetinn verður einnig að hafa skilning á atvinnulífinu, einkaframtaki sem frumkvöðlastarfi og mikilvægi þess að fyrirtæki og atvinnuvegir gangi vel. Kjör og líðan almennings eiga að skipta hann hjartans máli. Forseti sem liti á það sem hlutverk sitt að vera „silkihúfa“ eða „veislustjóri á Bessastöðum“ er óþarfur. Forseti á að nota áhrifavald sitt til að tala í þágu þjóðarinnar.“
Herdís segir jafnframt að forseti sé pólítískur í þeim skilningi að hann láti sig þessi mál varða en hann tjái sig ekki beint um lagasetningu í mótun. „Hann er ekki fulltrúi sérhagsmuna eða einstakra hópa í samfélaginu. Forseti sem beitir sér í þágu mannréttinda er að beita sér fyrir grundvallarréttindum en öll lagasetning verður að vera samrýmanleg þeim.
Sé forseti í aðstöðu til þess á hann að reyna að sætta ólík sjónarmið; þjappa þjóðinni saman í að ná áttum og tökum á tilverunni eftir hamfarir hrunsins, sem ekki sér fyrir endann á, og móta framtíðina á grundvelli gamalla, góðra gilda og hugsjóna sem byggja á jafnræði, réttlæti og friði.“
Svava Jónsdóttir
Herdís er í viðtali um kosningabaráttuna í Páskablaði DV.

Hemmi Gunn fallinn frá