ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.2° 7m/s S

Missti fóstur

Sjónvarpsstjarnan Bethenny Frankel þráir að eignast annað barn.
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
12:00 › 23. febrúar 2012

Sjónvarpsstjarnan og athafnakonan Bethenny Frankel upplýsti í tilfinningaþrungnu viðtali í Today show að hún hefði nýlega misst fóstur. Frankel, sem á tveggja ára dótturina Bryn með eiginmanni sínum Jason Hoppy, var komin átta vikur á leið.

„Slíka lífsreynslu getur enginn nema kona skillið. Ég er að renna út á tíma og það reynist mér afar erfitt,“ sagði Frankel sem er 41 árs.

„Okkur langar í annað barn en ég reyni að hugsa sem minnist um það. Ég get ekki ímyndað mér hvað konur sem eiga engin börn ganga í gegnum. Þetta er svo erfitt,“ sagði Frankel sem vakti fyrst athygli þegar hún keppti í raunveruleikaþættinum The Apprentice: Martha Stewart.

Hún efnaðist svo á framleiðslu grennandi orkudrykkja og hefur síðan verið með eigin raunveruleikaþátt.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?