ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.2° 7m/s S

Prins í blóðugum slagsmálum

Barnabarn Grace Kelly í áflogum á Manhattan
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
12:00 › 22. febrúar 2012

Barnabarn Grace Kelly og sonur Karólínu prinsessu af Mónakó lenti í blóðugum slagsmálum þegar hann var að skemmta sér í New York á dögunum.

Prins Pierre Casiraghi, 22 ára, var að djamma á Manhattan ásamt vinum sínum þegar þeir ákváðu að kíkja á skemmtistaðinn Double Seven.

Á meðal þeirra sem voru í hópnum var hinn gríski Stavros Niarchos III sem er fyrrum kærasti Parísar Hilton ásamt fleirum evrópskum ríkum pabbastrákum.

Samkvæmt vitnum var hópurinn með læti sem leiddi til átaka milli Casiraghi og eigenda staðarins. Vitni segir prinsinn hafa verið dónalegur við fyrirsætur sem sátu við borð Adams Hock, eigenda Double Seven.

Ekki leið á löngu þar til lögreglan var kölluðu til en þá var prinsinn orðinn illa leikinn. „Hock reiddist og kýldi prinsinn svo hann þeyttist yfir borðið.

Hann var allur skorinn í andlitinu og það var blóð út um allt,“ sagði gestur á skemmtistaðnum. Hock var handtekinn en prinsinn fluttur á sjúkrahús.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?