Ekki einu sinni forseti Bandaríkjanna getur sagt nei við Mick Jagger, söngvara Rolling Stones. Barack Obama gerði sér lítið fyrir og söng gamla blússlagarann Sweet Home Chicago.
Austur herbergi Hvíta hússins í Washington, Bandaríkjunum, breyttist í sveittan blúsklúbb í gærkvöldi þar sem stjörnur tónlistarstefnunnar létu ljós sitt skína.
Þessi óvænti flutningur Obama átti sér stað í lok tónleikanna en lagið Sweet Home Chicago er nánast lofsöngur heimaborgar hans.
Tónlistarmaðurinn Buddy Guy bar það undir forsetann hvort hann vildi ekki syngja fyrir þá. Guy hafði heyrt Obama syngja lag sálarsöngvarans Al Green – Let´s stay together – og sagði við forsetann: „Þú verður að halda þessu áfram.“
Mick Jagger rétti forsetanum hljóðnemann sem gat ekki annað en tekið lagið fyrir framan þessa snillinga.
„Come on, baby don´t you want to go,“ söng forsetinn tvisvar sinnum áður en hann rétti B.B. King hljóðnemann í stutta stund. Forsetinn söng síðan aftur: „Sweet Home Chicago“.
Obama syngur Let´s stay together



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 

Jim Parsons kemur út úr skápnum
Emily snýr aftur
Of auðvelt líf
Transkona í 12. sæti
Hver hefur sinn djöful að draga
