ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.2° 7m/s S

LUV dagurinn til heiðurs Hemma í dag

„Faðmaðu nágrannann, vini þína, samstarfsmenn, fjölskylduna og alla sem á þínum vegi verða“
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
10:42 › 22. febrúar 2012
Hermann Fannar Valgarðsson hefði orðið 31 árs í dag og er LUV dagurinn haldinn honum til heiðurs

Hermann Fannar Valgarðsson hefði orðið 31 árs í dag og er LUV dagurinn haldinn honum til heiðurs

Í dag ræður náungakærleikurinn ríkjum. Fólk er hvatt til að leggja niður allar varnir, faðmast og elska náungann í tilefni LUV dagsins, en hann er haldinn í minningu Hermanns Fannars Valgarðssonar, sem hefði orðið 32. árs í dag 22. febrúar.

„Faðmaðu nágrannann, vini þína, samstarfsmenn, fjölskylduna og alla sem á þínum vegi verða. Þetta er það sem LUV dagurinn snýst um,“ segja vinir Hermanns en margir þekktu hann sem einstaklega kærleiksríkann mann sem heilsaði iðulega vinum og kunningjum með faðmlagi.

Hermann Fannar lést skyndilega þann 8. nóvember síðastliðinn langt fyrir aldur fram. Hermann var búsettur í Hafnarfirði og lætur eftir sig eiginkonu, ungan son og ófætt barn. Hann var athafnamaður mikill og var annar eiganda Nýlenduvöruverzlunar Hemma og Valda á Laugavegi og kaffishússins Tíu dropa, ferðaþjónustufyrirtækisins Reykjavík Backpackers og tölvuþjónustufyrirtækisins Macland. Einnig var hann um árabil útvarpsmaður við miklar vinsældir á X-inu 977.

Bræðurnir Jón Jónsson og Friðrik Dór munu spila til heiðurs Hermanns og LUV dagsins á Nýlenduvöruverslun Hemma og Valda í kvöld og byrja tónleikarnir upp úr klukkan 21.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?