Jessica Biel bar loksins trúlofunarhringinn á almannafæri þegar hún fór út á djammið í New York um helgina en það er meira en mánuður síðan leikkonan trúlofaðist Justin Timberlake.
Parið hefur hingað til látið lítið fyrir sér fara saman en á því var breyting síðasta laugardagskvöld. Samkvæmt vitnum létu Jessica og Justin afar vel að hvoru öðru í eftirpartý Saturday Night Live þáttarins.
Biel, sem er 29 ára, og Timberlake, sem er 31 árs, fóru að vera saman árið 2007. Á laugardagskvöldið voru þau að fagna þátttöku Justins í SNL en aðrir í partýinu voru meðal annars leikkonurnar Evan Rachel Wood og Chloë Sevigny, fyrirsætan Kate Upton og leikarinn Philip Seymour Hoffman.
„Biel og Timberlake voru að knúsast allt kvöldið og hún bar stóran fallegan hring á fingri sem hlýtur að hafa verið trúlofunarhringurinn,“ sagði ónafngreindur gestur í partýinu í viðtali við tímaritið People.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 

Jim Parsons kemur út úr skápnum
Emily snýr aftur
Of auðvelt líf
Transkona í 12. sæti
Hver hefur sinn djöful að draga
