„Ég er ánægður. Við erum ánægð saman,“ segir knattspyrnukappinn Grétar Rafn Steinsson í samtali við DV en fréttir af trúlofun hans og ensku fegurðardísarinnar Francescu Bamber bárust út á mánudagskvöldið. Trúlofunin var þó opinberuð á sérstakan máta en systir Francescu, Daniella, óskaði þeim til hamingju á samskiptasíðunni Twitter.
„Vil óska systur minni og Grétari til hamingju með trúlofunina. Ég er svo spennt,“ skrifaði hún. Það eru þó fáir Íslendingar sem fylgjast með henni á Twitter en það var kollegi Grétars hjá Liverpool, Skotinn Charlie Adam, sem „endurtístaði“ skilaboðunum og þá fór allt af stað. „Þetta var svolítið sérstakt en bara fyndið og skemmtilegt,“ segir Grétar aðspurður um hvernig þetta fréttist.
Charlie þekkir Daniellu og Francescu frá því að hann var leikmaður Blackpool en þaðan eru systurnar. Þær þekkja líka vel til í fótboltanum en faðir þeirra, Dave Bamber, spilaði í fimmtán ár sem atvinnumaður á Englandi, meðal annars með Blackpool, Stoke og Watford.
Grétar og Francesca hafa verið saman frá því í lok árs 2010 en áður hafði Grétar slitið samvistir við eiginkonu sína Manuelu Ósk Harðardóttur. Skilnaður þeirra hjóna gekk svo gegn í nóvember síðastliðnum en hann var afar hávær og ljótur. Eins og DV greindi þá frá hugðist Manuela kæra Grétar Rafn fyrir persónunjósnir en lögmenn Grétars Rafns í skilnaðarmálinu réðu einkaspæjara til að fylgjast með henni. Hún hætti þó við kæruna.
Grétar og Francesca munu að öllu óbreyttu flytja á nýjan stað í sumar en Grétar sagði í viðtali við DV á dögunum að afar ólíklegt væri að hann myndi gera nýjan samning við Bolton. Samningur hans við liðið rennur út í sumar. Hann sagði að þreifingar væru nú þegar hafnar og aldrei að vita nema hann færi út í eitthvert ævintýri.
Hann er í landsliðshópi Íslands sem á að mæta Svartfjallalandi í æfingaleik á miðvikudaginn í næstu viku. Grétar dró sig úr landsliðinu á síðasta ári þar sem hann stóð í hörðum skilnaði við Manuelu. Grétar hefur ekki spilað landsleik síðan í október 2010 en spili hann gegn Svartfellingum á miðvikudaginn í næstu viku verður það 42. landsleikur hans á ferlinum.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 

Alin upp í flugvél
Ásdís Rán: „Skelfilegustu stundir lífs míns“
„Ofvirkir tvíburar klæddir einsog erfðabreyttir silungar“
Var 26 ár að klára lokaritgerðina
Ísbíllinn kom með vorið austur
