Elín var glæsileg í kjól frá Munda. Hér er hún ásamt tengdadóttur sinni, Vigdísi og Guðrúnu Ebbu. Pressphotos
Rithöfundurinn og fréttakonan Elín Hirst var á meðal gesta á Edduverðlaunahátíðinni sem fram fór í Gamla bíói síðastliðinn laugardag. Elín var glæsileg í hvítum silkikjól með bláum röndum úr haustlínunni 2012 frá fatahönnuðinum vinsæla Munda Vonda.
Elín mætti ásamt Guðrúnu Ebbu, dóttur Ólafs Skúlasonar biskups, og tengdadóttur sinni, Vigdísi Margrétar Jónsdóttur en það var einmitt í gegnum þá síðarnefndu sem hún kynntist fötunum frá Munda. „Vigdís er gömul vinkona mín og hún benti henni á kjólinn. Mér fannst hún rosa flott í honum og hann fór henni vel,“ segir Mundi ánægður með það að Elín skyldi klæðast hönnun hans.
Elín gaf út bókina Ekki líta undan þar sem Guðrún sagði frá ofbeldi föður síns í æsku. Viðtalsþáttur Þórhalls Gunnarsson í Ríkissjónvarpinu þar sem hann ræddi við Guðrúnu Ebbu var tilnefndur til Edduverðlauna í flokki frétta- og viðtalsþátta. Hann tapaði þó fyrir Landanum.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
Alin upp í flugvél
Ásdís Rán: „Skelfilegustu stundir lífs míns“
„Ofvirkir tvíburar klæddir einsog erfðabreyttir silungar“
Var 26 ár að klára lokaritgerðina
Ísbíllinn kom með vorið austur
