Afturendinn á fyrirsætunni og athafnakonunni Coco er jafnvel frægari en hún sjálf. Lengi hefur verið deilumál hvort rassinn sé alvöru eða hvort Coco hafi fengið sér sílikon-fyllingar í rasskinnarnar.
Coco ákvað að sanna sitt mál í eitt skipti fyrir öll og mætti í spjallþáttinn vinsæla The Doctors í gær. Þar athugaði lýtalæknirinn og spjallþáttastjórnandinn Andrew Ordon hvort einhver efni væru í afturenda Coco með því að nota sónar.
Svo kom á daginn að rassinn á Coco er alvöru. „Eruði tilbúin?“ spurði hann áhorfendur í sal áður en hann sagði: „Rasskinnar Coco eru 100 prósent alvöru.“
Coco vinnur mikið í því að halda bossanum stórum og stinnum og til þess notar hún ýmsar aðferðir. Meðal annars tekur hún hnébeygjur á mjög háum hælum.
Það var bara síðast í gær að hún upplýsti annað leyndarmál um hvernig hún heldur afturendanum í lagi á Twitter-síðu sinni:
„Farið í hundastellinguna á gólfinu. Setjið á ykkur fimm punda ökklalóð, lyftið fætinum út eins langt og þið getið og haldið þeirri stöðu. Skiptið svo um löpp.“



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 


Jim Parsons kemur út úr skápnum
Emily snýr aftur
Of auðvelt líf
Transkona í 12. sæti
Hver hefur sinn djöful að draga
