ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.2° 7m/s S

Atli stöðvaði slagsmál unglingsstúlkna í Kringlunni

Leikarinn segir skrýtið að enginn hafi stoppað þetta fyrr- fólk tók bara myndir
16:04 › 22. febrúar 2012
Atli Þór Albertsson stöðvaði harkaleg slagsmál tveggja unglingsstúlkna í Kringlunni í dag.

Atli Þór Albertsson stöðvaði harkaleg slagsmál tveggja unglingsstúlkna í Kringlunni í dag. Samsett mynd: DV

„Ég var allavega ekki næst þessu,“ segir leikarinn Atli Þór Albertsson sem fyrr í dag gekk á milli unglingsstúlkna sem slógust eins og hundur og köttur í Kringlunni. Hann furðar sig á því að enginn þeirra fjölmörgu gesta verslunarmiðstöðvarinnar sem urðu vitni að slagsmálunum hafi gengið á milli stúlknanna fyrr.

„Ég sat á bekk við hliðina á syni mínum sem hafði verið hjá augnlækni og svo sá ég að fjölmargir krakkar höfðu safnast saman og heyrði mikinn smell. Þá sé ég að búið var að mynda hring utan um tvær stúlkur sem voru að slást. Og þá meina ég virkilega að slást, hnefahöggin dundu,“ segir Atli Þór í samtali við DV. Hann segir aðra stúlkuna hafa rifið alla eyrnalokkana úr hinni.

Þegar Atla bar að var önnur stúlkan búin að hafa hina undir og gekk Atli þá á milli og dró stúlkuna frá. Sú sem lent hafði undir í slagsmálunum spratt þá á fætur og forðaði sér.

Atli segir að hann hafi síður en svo verið eini fullorðni einstaklingurinn í námunda við slagsmálin.

„Krakkarnir í kring hlógu bara að þessu og skemmtu sér meðan á þessu stóð. Ótal símar voru á lofti að taka myndir. Þetta snýst meira um að ná skemmtilegu myndefni til að setja inn á síðurnar sínar en að stoppa svona viðbjóð. En svo var líka fullorðið fólk þarna.“

Atli segir þetta ekki í fyrsta skipti sem hann verði vitni að því hvernig fólk finni ekki hjá sér þá hvöt að taka af skarið.

„Og þetta bara dæmi um hvað við treystum alltaf á að einhver annar geri það en höfum samt alltaf skoðun á því eftir á. Ég held að það sé ekki mikið fyrir fólk að óttast þegar það sér unglinga slást. Þetta er minna mál en fólk heldur að láta sig málið varða og koma í veg fyrir að einhver meiðist alvarlega,“ segir leikarinn Atli sem vann góðverk Öskudagsins í Kringlunni í dag.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?