ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.2° 7m/s S

Logi tekur u-beygju

Einbeitir sér að því sem hann er bestur í
09:17 › 20. febrúar 2012

„Ég ákvað að einbeita mér að því sem ég er bestur í,“ segir handboltakappinn Logi Geirsson sem er staðráðinn í að koma landanum í betra form með fjarþjálfun.

„Maður ræðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur. Enda er engin ástæða til þess. Það má eiginlega segja að ég hafi tekið u-beygju í því sem ég var búinn að sökkva mér í eftir að ég kom heim úr atvinnumennskunni,“ segir Logi sem hafði verið verið markaðsstjóri hjá Einari Bárðarsyni og vörumerkjastjóri hjá Asics en hann stundar nú nám við Háskólann á Bifröst í viðskiptafræði með áherslu á markaðssamskipti.

Logi hefur auk þess verið iðinn við að halda fyrirlestra en hann útskrifaðist ásamt unnustu sinni, Ingibjörgu Elvu, sem IAK-einkaþjálfari frá Keili 2010 og hefur síðan þjálfað nokkra útvalda.

„Eftir fyrirlestrana bauð ég fólki fría ráðgjöf og það rigndi inn pósti og þá aðallega um heilsu og þjálfun. Það varð í rauninni kveikjan að því sem ég er að gera núna. Ég hef gaman af því að prófa eitthvað nýtt og í stað þess að sitja og vorkenna mér vegna meiðsla ákvað ég að halda áfram og finna mér stað í lífinu sem ég vil vera á. Það er mitt mottó.“

Lestu ítarlega viðtal við Loga í DV í dag.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?