ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.2° 7m/s S

Logi Bergmann: Rúnar var alveg stjarfur

Leikstjóri Eldfjalls hló ekki að brandara Loga á Eddunni
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
12:42 › 20. febrúar 2012
Logi Bergmann skaut í allar áttir á Eddunni.

Logi Bergmann skaut í allar áttir á Eddunni. Mynd Pressphotos

„Ég skemmti mér vel,“ segir sjónvarpsmaðurinn Logi Bergmann Eiðsson sem var kynnir á Eddunni í ár. Logi byrjaði kvöldið með vel heppnuðu uppistandi þar sem hann skaut í allar áttir og lét kollega sína finna fyrir því. Gerði hann stólpagrín að mörgum miður heppnuðum verkefnum í sjónvarpi á árinu við hlátrasköll í Gamla bíói þar sem Eddan var haldin í ár.

„Ég fékk bara góð viðbrögð,“ segir Logi. „Það höfðu allir gaman af þessu. Ég skaut nú aðeins þarna á Sjónvarpið því tilnefningarnar í ár voru svolítið sérstakar. En það þýðir ekkert að fara í fýlu,“ segir Logi sem tók þætti eins og Tríó og Kexvexmiðjuna af lífi.

Einn sem hló þó ekki var Rúnar Rúnarsson, leikstjóri Eldfjalls. Í myndinni er Theódór Júlíusson, aðalleikari myndarinnar, mikið að pússa bát og sagði Logi að framhald væri á döfinni. Hún myndi fjalla um mann sem væri að bóna bíl allan tímann.

„Ég horfði beint á Rúnar þegar ég sagði þetta og hann var alveg stjarfur. Það var bara ekkert að frétta,“ segir Logi og hlær við. Rúnar gat þó brosað í enda kvöldsins enda tók Eldfjall öll stóru verðlaun kvöldsins.

Ítarlegra viðtal við Loga þar sem hann talar meðal annars um ofurræðu Maríu Hebu Þorkelsdóttur á Eddunni má finna í DV í dag



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?