ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.2° 7m/s S

Líður vel nakinni

Christina Hendricks situr fyrir í BlackBook
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
14:25 › 2. febrúar 2012
Christina Hendricks er glæsileg.

Christina Hendricks er glæsileg.

Leikkonan Christina Hendricks er fyrir löngu búin að stimpla sig inn sem ein af gyðjum Hollywood með hlutverki sínu í þáttunum Mad Men.

Tímaritið BlackBook hefur nú staðfest að hún muni sitja fyrir í myndaþætti í mars-útgáfu tímaritsins en þar segir hún líka í viðtali að henni líði vel nakinni. Það þýðir þó ekki að nokkur annar maður en eiginmaður hennar fái að sjá hana á Evuklæðunum.

„Mér líður mjög vel nakinni. Ekki samt fyrir framan annað fólk, bara heima fyrir framan manninn minn. Þar líður mér vel án fata,“ segir Hendricks í viðtalinu sem birtist í mars.

Fimmta þáttaröðin af Mad Men hefst í sama mánuði.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?