ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.2° 7m/s S

Kynntist kærastanum í erótísku nuddi

Sigga Lund á kærasta sem er 13 árum yngri
Viktoría Hermannsdóttir viktoria@dv.is
06:30 › 18. febrúar 2012
Sigga kynntist Aðalsteini þegar hún var að kenna erótískt nudd á vegum Zúber á Egilsstöðum.

Sigga kynntist Aðalsteini þegar hún var að kenna erótískt nudd á vegum Zúber á Egilsstöðum. Aðalsteinn Sigurðarson

  • Aðalsteinn, kærasti Siggu, er þrettán árum yngri en hún. Fyrst kom það ekki til greina að vera með yngri manni en svo ákvað hún að láta á það reyna.

    Aðalsteinn, kærasti Siggu, er þrettán árum yngri en hún. Fyrst kom það ekki til greina að vera með yngri manni en svo ákvað hún að láta á það reyna.Aðalsteinn Sigurðarson

Aðalsteinn kærasti Siggu er sveitastrákur frá bænum Vaðbrekku, sem er rétt fyrir utan Egilsstaði. Þau kynntust við frekar skondnar aðstæður þegar hún var á ferðalagi um landið með morgunþættinum Zúúber. „Við vorum að skemmta á Egilsstöðum og partur af sýningunni var að ég kenndi erótískt nudd,“ segir Sigga og skellir upp úr. „Andskotans vitleysa, jæja,“ segir hún hlæjandi og heldur áfram.

„Zúúber gekk svolítið út á þetta kynlífstal allt saman. Það varð úr að ég fór í korselett og nuddaði fórnarlamb úr salnum. Hann var fórnarlambið þetta kvöldið og hreifst svona svakalega, eitthvað gerði ég rétt,“ segir hún hlæjandi. Sigga var ekki á þeim buxunum að taka saman við nuddfórnarlambið frá Egilsstöðum. „Ég ætlaði mér aldrei neitt með þennan strák. Hann er þrettán árum yngri en ég fyrir það fyrsta. Þegar við erum komnar á þennan aldur, þá vill maður vera svo skynsamur og svona og það kom aldrei til greina að vera með yngri manni og allt þetta.

Síðan tók ég bara þann pólinn í hæðina, ég ætla bara að vera í þessu meðan þetta virkar, meðan okkur líður vel. Meðan þetta er að gefa mér eitthvað og er að gefa honum eitthvað. Ef þetta eru tvö ár frábært, sex mánuðir frábært og ef þetta er „forever“ þá er það líka frábært. Og þannig hef ég tæklað þetta og það hefur gengið rosalega vel. Sveitastrákar eru náttúrulega bara öðlingspiltar upp til hópa. Maður veit það ekki fyrr en maður kynnist þeim, þvílíkir öðlingar. Það er alveg ótrúlegt,“ segir hún brosandi.

„Hann þurfti nú að ganga pínulítið á eftir mér og úr varð að hann heimsótti mig og ég heimsótti hann. Og þetta var svolítinn tíma að mallast. Svo gerðist þetta bara. Hann heillaði mig.“

Sigga Lund er í einlægu viðtali í helgarblaði DV. Áskrifendur geta lesið viðtalið í heild með þvi að ýta á meira

Meira »

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?