ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.2° 7m/s S

Þórunn Antonía: „Ég fíla spandex“

Keypti spandexgallann á E-Bay
Kristjana Guðbrandsdóttir kristjana@dv.is
11:00 › 17. febrúar 2012

„Ég fíla spandex,“ segir söngkonan og þáttastjórnandinn Þórunn Antonía sem hefur frumsýnt nýtt myndband við lagið Too Late. Þórunn, sem er meðal annars þekkt fyrir að vera dóttir tónlistarmannsins Magnúsar Þórs Sigmundssonar og annar stjórnenda skemmtiþáttarins Týndu kynslóðarinnar á Stöð 2, dansar djarflega í níðþröngum, hvítum „spandex“-galla í myndbandinu.
Myndbandið var tekið af Ágústi Bent, kærasta Þórunnar, úti á palli við heimili þeirra. Lagið verður á nýrri plötu Þórunnar Antoníu sem gert er ráð fyrir að komi út í vor. Plötuna vinnur hún með tónlistarmanninum Davíð Berndsen. Þórunn Antonía er einmitt í upptökum á enn einu laginu þegar blaðamaður hefur samband við hana og spyr hana út í myndbandið, væntanlega plötu og líflegan heimilisiðnað hennar og kærasta hennar Ágústs Bent.

Líflegur heimilisiðnaður
„Nágrannar okkar eru orðnir öllu vanir,“ segir Þórunn Antonía og hlær og segir þá hafa horft á dans hennar úti á palli stórum augum. „Þetta er auðvitað ekki í fyrsta sinn sem við skemmtum nágrönnum okkar og örugglega ekki í það síðasta. Ég sem tónlistina mína heima og syng mikið. Steindahöfuðstöðvarnar eru síðan náttúrulega heima hjá okkur. Strákarnir sitja í stofunni og skrifa gamanþættina. Fyrsta serían var klippt í svefnherberginu okkar. Það var reyndar mjög fyndin uppákoma þegar yfirmenn Stöðvar 2 litu inn snemma einn morguninn til að kíkja á efnið. Þannig ég reif mig fram úr rúminu og bauð þá velkomna á náttsloppnum og þeir sátu á rúmstokknum að horfa á fyrsta þáttinn,“ segir hún og skellihlær.

Keypti „spandex“-galla á Ebay
Hún virðist alls ófeimin við að vera djörf. Er hún ekkert feimin? „Nei, alls ekki. Ég er ekkert feimin, ég er löngu kominn yfir allan hégóma. Sem betur fer því það er svo mikil tímaeyðsla. Ég er bara eins og ég er. Hégóminn er hluti af gelgjunni, það er ánægjulegt að komast á það skeið að vera sáttur við sjálfan sig.
Aðalástæðan fyrir því að ég er í þessum galla er hins vegar að það þurfti að setja inn bakgrunn og þá var betra að vera í þröngum galla. Ég fór því á Ebay og verslaði einn hvítan galla og einn svartan. Það er líka lykilatriði að taka sig ekki alvarlega og skella sér í góðan partíbúning.“

Þórunn Antonía er í helgarviðtali í DV og ræðir um plötuna sem kemur út í vor, líflegan heimilisiðnað hennar, kærastann, Ágúst Bent og lífið sem hún lifði í London.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?