ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.2° 7m/s S

Kominn út úr skápnum

Stjarnan úr White Collar heiðruð
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
07:32 › 15. febrúar 2012
Fallegur. Leikarinn er 34 ára og fjallmyndarlegur.

Fallegur. Leikarinn er 34 ára og fjallmyndarlegur.

  • Bomer er aðalstjarnan í White Collar en hefur einnig leikið í Chuck og Guiding Light

    Bomer er aðalstjarnan í White Collar en hefur einnig leikið í Chuck og Guiding Light

Leikarinn Matt Bomer hefur viðurkennt að hann sé samkynhneigður en Bomer er þekktastur fyrir hlutverk sitt í amerísku þáttunum White Collar.

Ef til vill muna einhverjir eftir honum úr sápuóperunni Guiding Light og grínþættinum Chuck. Leikarinn, sem er 34 ára, hlaut verðalaun fyrir baráttu sína í málefnum HIV-smitaðra á dögunum og notaði tækifærið til að lauma sér út úr skápnum.

„Ég vil sérstaklega þakka fallegu fjölskyldunni minni: Simon, Kit, Walker, Henry. Takk fyrir að sýna mér hvað skilyrðislaus ást er. Þið verðið ávallt mitt mesta afverk,“ sagði Matt við verðlaunaathöfnina og átti þar við fjölmiðlafulltrúann Simon Halls, kærasta sinn, og börni þeirra þrjú. Bomer neitaði að ræða um kynhneigð sína í viðtali árið 2010 en lét hafa eftir sér að honum væri sama hvað kjaftasögurnar segðu.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?