ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.2° 7m/s S

Whitney Houston er látin

Aðeins 48 ára gömul
Ásta Sigrún Magnúsdóttir astasigrun@dv.is
08:00 › 12. febrúar 2012

Bandaríska stórsöngkonan og leikkonan Whitney Houston er látin aðeins 48 ára að aldri. Hún fannst látin á hótelherbergi sínu í gær þegar lífvörður hennar kom að henni. Að sögn bandarískra fjölmiðla komu lögreglumenn og sjúkraflutningamenn á vettvang aðeins tveimur mínútum eftir að leitað var eftir aðstoð, en tilraunir til endurlífgunar báru ekki árangur. Dánarorsök hennar liggur ekki fyrir.

Houston átti við langvarandi fíkniefnavanda að stríða og hafði nokkrum sinnum reynt að segja skilið við fíkniefnin. Hún fór síðast í meðferð í maí í fyrra, en undanfarið hefur hún verið á tónleikaferðalagi og töldu margir líklegt að hún væri að ná sér.

Houston var margverðlaunuð sögnkona, hafði meðal annars unnið Grammy verðlaunin margoft. Houston var stödd í Los Angeles vegna Grammy verðlaunahátíðarinnar sem fer fram í kvöld. Ljóst er að fráfall hennar varpar skugga á hátíðarhöldin.

Whitney lætur eftir sig eina dóttur, Bobbi Kristina, sem hún átti með fyrrverandi eiginmanni sínum,söngvaranum Bobby Brown.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?