ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.2° 7m/s S

Sigmundur Davíð er með söfnunaráráttu

Bjargaði munum í flutningum Ríkisútvarpsins
12:00 › 12. febrúar 2012
Sigmundur Davíð segir að eiginkonu sinni finnist stundum nóg um söfnunaráráttuna

Sigmundur Davíð segir að eiginkonu sinni finnist stundum nóg um söfnunaráráttuna Mynd Eyþór Árnason

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins og eiginkona hans Anna Sigurlaug Pálsdóttir deila áhuga sínum á skipulagsmálum og gömlum húsum. Margir muna þegar Anna Sigurlaug, sem er dóttir Páls Samúelssonar fyrrverandi eiganda Toyota umboðsins, bauðst til að endurbyggja Laugaveg 4 og 6 í upprunalegri mynd á eigin kostnað en þá hafði hún selt verðmætan hlut sinn í fjölskyldufyrirtækinu.

Sigmundur segir eiginkonuna halda því fram að hann eigi engin áhugamál önnur en þau sem snúa að vinnunni en bendir á að nýtilkomið föðurhlutverk verði nú hans aðal áhugamál. „Menn hafa líka bent á að það er æskilegt fyrir stjórnmálamenn að hafa áhuga á fleiru en samfélagsmálum. Ljósmyndun er smá tilraun í þá áttina. Það er að vísu ekki alveg nýtt áhugamál en ég hætti að sinna því þegar ég fór í stjórnmálin. Áður voru þetta aðallega myndir tengdar skipulagsmálum en núna myndar maður aðallega barnið. Mér finnst ég aldrei hafa tekið nógu margar myndir af henni.“

Þar að auki segist Sigmundur mikill safnari. „Konunni minni finnst þessi söfnunarárátta full mikið af því góða en ég hef tilhneigingu til að hirða hluti og geyma allt sem mér finnst sögulegt og sérstakt. Það er því ýmislegt sem hefur hrúgast upp og fleirum en Önnu Sigurlaugu hefur fundist nóg um. Ég var að vinna á Rúv þegar flutt var af Laugaveginum upp í Efstaleiti og eins og oft í flutningum rann æði á menn að henda og jafnvel því sem mér þótti söguleg verðmæti. Ég tók mig til og reyndi að bjarga þessum minjum og hrúgaði í eina 50 kassa. Sumir þeirra eru í geymslu en aðrir eru faldir í húsi Ríkisútvarpsins þar sem ég mun vísa á þá þegar menn hafa komið sér upp aðstöðu til að geyma þetta,“ segir hann og bætir við að hann hafi sjálfur upplifað sinn eiginn Árnasafnsbruna.

Nánar er rætt við Sigmund Davíð í helgarblaði DV þar sem Indíana Ása Hreinsdóttir ræddi við hann um föðurhlutverkið, óvæntan stjórnmálaframa, megrunina, áhugamálaleysið og kjaftasögurnar. Áskrifendur að DV.is geta lesið alla fréttina ef þeir ýta á meira

Meira »

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?