Heimsbyggðin syrgir Whitney Houston í dag, en stórsöngkonan fannst látin á hótelherbergi í Los Angeles í gær, klukkan 15:55 að staðartíma. Hún var þar stödd til að taka þátt í Grammy verðlaunahátíðinni. Ljóst er að fráfall hennar varpar dökkum skugga yfir hátíðarhöldin í kvöld, en Houston hafði margoft verið verðlaunuð á hátíðinni, enda uppskeruhátíð tónlistarfólks.
Mikil sorgLeikkonan Eva Longoria segir á Twitter síðu sinni:„Hjarta mitt brast.“ Athafnakonan Kim Kardashian og systur hennar, Khloe og Kourtney votta fjölskyldu og dóttur Houston virðingu sína og sérstaklega dóttur hennar sem er aðeins átján ára gömul.
Umboðsmaðurinn Simon Cowell segir að fráfall söngkonunnar sé mikið áfall og nánast óbærileg tilhugsun. Hún hafði nokkrum sinnum aðstoðað Cowell í sjónvarpsþáttum hans, American Idol og X factor og hafði Cowell íhugað að gera hana að dómara í Xfactor. Álagið sem Houston hefði verið undir hefði verið óbærilegt. „Ég er gjörsamlega miður mín,“ segir Cowell.
Söngkonan og samstarfskona Whitney, Mariah Carey tekur í sama streng og segir „Hjartasorg og endalaus tár eftir að ég frétti af skyndilegu fráfalli elsku vinkonu minnar, Whitney Houston. “
Fyrrverandi eiginmaður Whitney Houston, Bobby Brown, mun vera óhuggandi eftir að hann frétti af andláti stjörnunnar. Á tónleikum í gærkvöldi þar sem hann átti að spila mun hann hafa hegðað sér mjög óeðlilega og var augljóslega mjög sorgmæddur. Á miðjum tónleikum hætti hann að syngja og kallaði „Whitney“ út í salinn.
Síðasta lagið
Hér má sjá Whitney syngja lagið „Yes Jesus loves me“ á föstudagskvöld, en þetta mun vera síðasta lagið sem hún söng fyrir aðdáendur sína. Whitney hafið undanfarið verið á tónleikaferðalagi og markvisst var unnið að því að koma henni aftur í fyrri stöðu sem ein besta söngkona heimsins. Eftir langvarandi baráttu við fíkniefnadjöfulinn hafði Whitney dregið sig mikið í hlé frá tónlistinni en hafði undanfarin tvö ár verið að ferðast og syngja víðsvegar um heiminn.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 

Jim Parsons kemur út úr skápnum
Emily snýr aftur
Of auðvelt líf
Transkona í 12. sæti
Hver hefur sinn djöful að draga
